156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðvera stjórnarliða á þingfundum.

[15:28]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Það eru nokkur atriði sem mig langar að bregðast við í fundarstjórn. Í fyrsta lagi þá hefðum við ekki náð þessu margnefnda Íslandsmeti sem hefur verið rætt um ef ekki hefði verið fyrir þátttöku stjórnarliða í umræðunni, svo það sé sagt. En ef verklagið er nú yfirleitt þannig að málum sé vísað til næsta fundar varðandi atkvæðagreiðslu þá vil ég spyrja hæstv. forseta af hverju hún frestaði þá þingfundi tvívegis síðastliðinn laugardag. Var það þá bara til þess að halda stjórnarandstöðunni hér í þinghúsinu fyrir ekki neitt? Hvað varðar virðingu við þingið þá tel ég líka afar mikilvægt að hafa það í huga að forseti á að vera forseti alls þingsins. Ég hef ekki vitað til þess áður að forseti taki þátt í einhverjum útvarpsþætti eða viðtali þar sem hann talar sérstaklega um stjórnarmál. Mér finnst það ekki við hæfi og þetta er ekki eina atriðið sem varðar vanvirðingu við þingið. Við þurfum að gæta að því hvernig við vinnum saman og að sýna hvert öðru virðingu. Í ljósi þess (Forseti hringir.) vil ég hvetja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra til að koma hér upp og gera grein fyrir viðveru sinni síðastliðinn laugardag, hvort það sé rétt sem hér er haldið fram.