156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðvera stjórnarliða á þingfundum.

[15:29]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég ræddi hér í störfum þingsins í síðustu viku um akkúrat þetta sem mér finnst vera vaxandi vandamál, þ.e. ákveðið virðingarleysi framkvæmdarvaldsins gagnvart þinginu og einhvern ákveðinn misskilning hérna í þinginu gagnvart verkefni framkvæmdarvaldsins. Það tók nú eiginlega steininn úr þegar hæstv. forsætisráðherra tók undir að hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra gæti sleppt því að skipa í stjórnir vegna þess að það væri fyrirhugað að koma með mál inn í þingið sem þingið myndi bara þar af leiðandi stimpla. Það er jú þannig, frú forseti, og ég veit að frú forseti þekkir það mjög vel, að framkvæmdarvaldið kemur með sín mál til þingsins og það er 1. umræða sem er tæki þingsins til að ræða við framkvæmdarvaldið. Eftir það er málið í höndum okkar í þingsal, þingmannanna, og við getum breytt því að vild samkvæmt íslenskri stjórnarskrá og hefð (Forseti hringir.) í flestum tilvikum. En ekki stimpilpúði, það megum við ekki verða.