156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðvera stjórnarliða á þingfundum.

[15:31]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Ég ítreka fyrirspurn mína til hæstv. forseta um viðbrögð við því sem fram hefur komið hér, m.a. frá hæstv. forseta sjálfum. Eins og forseti þekkir þá sitja ráðherrar hér í krafti þingsins en ekki öfugt og hæstv. fjármálaráðherra er raunar eini maðurinn á Íslandi sem má sitja þingfundi verandi ekki þingmaður eða starfsmaður Alþingis. Hann situr engu að síður hér í krafti þingsins og reyndar hefði maður haldið að við þær aðstæður myndi hæstv. ráðherra leggja sig sérstaklega fram við að sinna þinginu og ekki neita að mæta til þingfundar þegar forseti Alþingis fer fram á það. Því ítreka ég spurningu mína til hæstv. forseta: Hver verða viðbrögð hæstv. forseta við þessu máli?