156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðvera stjórnarliða á þingfundum.

[15:32]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Íslandsmeistararnir telja að á þá sé hallað en ég vísa því alveg til föðurhúsanna að hæstv. ráðherra hafi ekki tekið þátt í umræðunni. Það kemur einfaldlega fram að hún hafi tekið 12 sinnum þátt, svarað hér í andsvörum, en það er auðvitað ekki hægt að ætlast til þess að fólk sé hér svo dögum skipti í þessari staglkenndu umræðu (Gripið fram í.) sem fór hér fram. Þetta var auðvitað Íslandsmet í málþófi og ekkert annað í 1. umræðu. Ég held að áður en hv. stjórnarandstaða fer hér að tala um virðingu þingsins þá ættu Íslandsmeistararnir að líta sér nær.