156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðvera stjórnarliða á þingfundum.

[15:33]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Þetta er vissulega mál hæstv. atvinnuvegaráðherra sem sat hér við upphaf þingfundar þegar hún mælti fyrir málinu. Ég get hins vegar ekki látið hjá líða að vekja athygli á því, sem ég þarf svo sem ekki að gera gagnvart þeim sem hafa fylgst með þessari umræðu, að málið varðar sjávarútveginn, varðar skattlagningu. En umræður hér snerust ekki síst um sveitarfélögin á landinu, stöðu þeirra og viðkvæmra byggða á landsbyggðinni og það var kallað hér líka eftir því, þótt það hafi ekki verið gert formlega þá var það gert í ræðum hér, a.m.k. á laugardeginum og ef ekki fyrr, eftir viðveru innviðaráðherra sem að sjálfsögðu hefði átt að láta málið sig varða. Það á ekki að þurfa að draga stjórnmálamenn með formlegu erindi, bréfi, ábyrgðarpósti hérna inn á þingfund. Menn eiga bara að hafa metnað og þó ekki væri nema pólitískan áhuga á að sitja þingfundi þar sem verið er að ræða mál sem undir þá heyra. Ég hvet og brýni hæstv. ráðherra til að taka sig á í þessum efnum.