156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðvera stjórnarliða á þingfundum.

[15:36]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég vona að ég og hv. þm. Sigurjón Þórðarson verðum saman Íslandsmeistarar í körfubolta fljótlega. Að öllu gamni slepptu þá finnst mér það fyrir neðan allar hellur í svona stóru máli og finnst það ekki mikil þátttaka hjá hæstv. atvinnuvegaráðherra að mæta í andsvör við tvo af þeim sem höfðu eitthvað um þetta stóra og mikilvæga mál að segja. Svo var þessi vissulega langa umræða í 1. umræðu. Við verðum að taka 1. umræðu gríðarlega alvarlega í þessum þingsal þar sem málin virðast fara inn í nefndir og umsagnaraðilar fá varla að koma og segja sína skoðun. Það má alls ekki breyta málum frá hæstv. ríkisstjórn þannig að við verðum að nýta 1. umræðu til að ræða málin. Það er hæstv. ríkisstjórn sem ræður hér ríkjum, svo virðist vera hjá þessum stjórnarmeirihluta. (Forseti hringir.) Að hæstv. ráðherra hafi aldrei séð ástæðu til þess að koma inn í allri þessari umræðu, ekki einu sinni til að reyna að leiðrétta meintar rangfærslur eða koma sínum sjónarmiðum á framfæri, ekki einu sinni í lokaræðu, (Forseti hringir.) er algjör vanvirðing við þingið. (Forseti hringir.) Ekki nema hæstv. ráðherra sé sammála stjórnarandstöðunni og því sem hún hélt fram í þessu máli, af því að hún sá aldrei ástæðu til að koma og leiðrétta eitt né neitt.