viðvera stjórnarliða á þingfundum.
Frú forseti. Hér er talað eins og hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar séu eitthvað feimnir við það að eiga Íslandsmet í þessari umræðu. Ég er frekar stoltur af því. Ég vil líka að segja að þetta er hvergi nærri Íslandsmet í málþófi á Íslandi. Ég á líka þátt í því og er jafn stoltur af því, get farið yfir það með hv. þingmanni seinna. En mér datt í hug að kannski er hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra vorkunn. Hann er náttúrlega ekki kjörinn þingmaður og hugsanlega gerir hann sér ekki fulla grein fyrir því hversu mikilvægt sambandið milli framkvæmdarvalds og löggjafarvalds er og að það samband sé ræktað og það samband sé reist á trausti. Væntanlega og vonandi lærir hæstv. ráðherra af þessari reynslu, að það sé betra og tilhlýðilegra að vera hér viðstaddur þegar stór mál eru rædd. Þegar mál eru vanreifuð þarf töluverða umræðu til þess að leiða þau í jörð.