viðvera stjórnarliða á þingfundum.
Frú forseti. Þetta er hið sérkennilegasta mál og hér hefur komið fram í umræðunni, alla vega verið sagt, að hæstv. ráðherra hafi verið á svæðinu. Ég skora á hæstv. ráðherra að gera grein fyrir málinu. Við verðum að geta treyst því að samskipti forseta og þingmanna og ráðherra séu þess eðlis að það sé hægt að treysta þeim samskiptum.
Frú forseti. Kannski ég taki undir orð hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um það hver samskipti forseta voru við þennan ákveðna hæstv. ráðherra þegar hann sinnir ekki því að koma hingað og sýna þinginu þá virðingu að vera við þegar málið er rætt. Þetta verður að nást einhvers konar niðurstaða um.