156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðbrögð dómsmálaráðherra við gagnastuldi.

[15:47]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Orðræðan er enn mjög á sömu leið, að hæstv. ráðherra líti þetta mjög alvarlegum augum en enn þykir mér skorta nokkuð á svör um viðbrögð. Hæstv. ráðherra svaraði, eða svaraði í rauninni ekki fyrirspurn hv. þm. Sigríðar Á. Andersen fyrir helgi um ákveðna anga þessa máls en kaus svo að svara fjölmiðlum. Nú ítreka ég a.m.k. fyrri spurningu mína varðandi þau gögn sem þarna eru undir. Er hæstv. ráðherra eða ráðuneytið fyrir hans hönd búið að afla frekari upplýsinga um þetta eða er einfaldlega beðið eftir næstu frétt til að geta þá komið hingað aftur og útskýrt fyrir þinginu hversu miklar áhyggjur hæstv. ráðherra hafi af þessu máli öllu? Hefur hæstv. ráðherra engar áhyggjur af því að rannsókn málsins kunni að einhverju leyti að vera á vegum þeirra sem höfðu haft aðkomu að málinu á fyrri stigum?