156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

viðbrögð dómsmálaráðherra við gagnastuldi.

[15:49]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Mér finnst ábyrgðarhlutverk af minni hálfu að svara spurningum en ég verð að segja að það er ábyrgðarhlutverk af hálfu hv. þingmanna að geta hlustað á svörin. Ég er að lýsa því yfir að síðast í dag sendi ég bréf þar sem ég er að kalla eftir lykilupplýsingum um verklag, um upplýsingaöryggi, um eyðingu gagna hjá sérstökum saksóknara. Þetta er frumkvæði mitt. Ég er að stíga það skref að kalla eftir gögnum. Þannig að svarið við spurningu hv. þingmanns um hvort ráðherra sitji heima og horfi á fréttatíma í línulegri dagskrá er nei. Ég er að stíga ákveðin og markviss skref um að kalla hér fram gögn. Ég vil hins vegar segja, af því að ég hef fylgst með umræðunni hér í þessum þingsal, að mér líst vel á þau skref sem þingið er samhliða að stíga; að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ætli að rýna þetta mál og að þetta verði tekið föstum tökum. Málið er til skoðunar hjá lögreglu. Málið er til skoðunar hjá sjálfstæðri og óháðri nefnd um eftirlit með störfum lögreglu og ég er nú sem ráðherra að virkja mínar (Forseti hringir.) eftirlitsheimildir með því að kalla eftir gögnum. Mér hefði þótt góður bragur á því hjá forverum mínum undanfarinn áratug eða svo að gera slíkt hið sama.