156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

fjarvera ráðherra á þingfundi.

[15:50]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Ég ætlaði nú að spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að öðru en í ljósi umræðunnar undir liðnum fundarstjórn forseta er ekki hægt að horfa fram hjá því að það vaknaði upp spurning sem var ekki svarað. Hér á laugardaginn beið þingheimur í tvær klukkustundir eftir því að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kæmi í hús og upp hafa vaknað spurningar undir fundarstjórn: Hvar var ráðherra? Vil ég því spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra: Hvar var hann?