fjarvera ráðherra á þingfundi.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir hans spurningu og þingheimi fyrir ágæta umræðu. Ég er örlítið hrærður yfir áhuga þingheims á mér og þátttöku minni og þykir mikil upphefð að því. Tilfellið er að ég hafði skyldum að gegna á fundi sem vissulega var hér í húsinu og hafði í hyggju að koma hér og taka þátt í lokum umræðunnar sem varð síðan styttri en gert var ráð fyrir og það náðist því ekki.
Ég vil kannski koma því að ég hef ávallt verið viðstaddur 1. umræðu allra þeirra mála sem ég hef mælt fyrir hér í þinginu frá upphafi til enda og ávallt tekið þátt í umræðu, ávallt hlustað á hana og tekið hana til mín, þannig að því sé haldið til haga að það var vissulega óheppilegt að ég skyldi ekki ná að sinna þessu hlutverki mínu. En eins og ég segi, fundurinn varð styttri en ég hafði gert ráð fyrir.