156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

fjarvera ráðherra á þingfundi.

[15:53]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir hans síðari spurningu. Það var að sjálfsögðu ekki mín ætlun að sýna neina vanvirðingu, þvert á móti. Nú getur auðvitað verið að okkur hv. þingmann greini á um hvað séu markverðir fundir og hvað séu ekki markverðir fundir en það var vissulega ætlun mín að sinna því hlutverki sem ég átti að sinna hér. Það má raunar á vissan hátt líta þannig á að ég hafi verið í húsi. Ég vil benda á að starfsemi Alþingis er með þeim hætti að það er ekki nauðsynlegt að fylgjast með umræðu úr salnum heldur er henni vandlega lýst um allt húsið og það gefur þess vegna tækifæri til ákveðins sveigjanleika varðandi nákvæmlega hvar fýsískt menn eru til staðar.