156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

niðurstaða óbyggðanefndar varðandi þjóðlendur í Vestmannaeyjum.

[15:54]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Mig langar til að beina spurningunni til hæstv. fjármálaráðherra og spyrja hvað ný afstaða óbyggðanefndar þýði fyrir Vestmannaeyjar. Í niðurstöðunni kemur skýrt fram að sú afstaða að hluti krafna ríkisins um að eyjar og sker við landið séu þjóðlendur eigi ekki við rök að styðjast. Hvers vegna er augljóst að bregðast þurfi við málinu sérstaklega fyrir Vestmannaeyjar? Jú, bæði er réttur eyjanna augljósari og krafan mun meira íþyngjandi en víðast hvar annars staðar á landinu. Upphaflega krafðist ríkið þess að sjálfur Heimaklettur og Blátindur auk hlíða Herjólfsdals, og þar á meðal er brekkan sem brekkusöngurinn á þjóðhátíð er kenndur við, yrðu einnig þjóðlendur ásamt nýja hrauninu. Krafan var endurskoðuð í tíð Framsóknar og einungis haldið eftir kröfum í Stórhöfða og úteyjar þar sem vafi þótti leika á um eignarhald þeirra og skera þyrfti úr um það sérstaklega. Réttur Vestmannaeyja virðist sömuleiðis augljós því að bærinn keypti árið 1960 allar eyjarnar, þar með talið úteyjar, af ríkinu eins og vel er orðað í 1. gr. laganna frá 10. maí 1960 er salan var lögfest á Alþingi. Nú hefur óbyggðanefnd farið yfir málið og í niðurstöðunni er vísað til ákvæða í lögbókinni Jónsbók sem leidd var í lög árið 1281.

Virðulegi forseti. Úteyjarnar sem hér um ræðir voru öldum saman matarkista Eyjamanna sem sækja þangað enn þann dag í dag. Úteyjarnar eru því bæði saga og lifandi samtíð heimafólks og órjúfanlegur hluti Vestmannaeyja þar sem hjarta þeirra sannarlega slær eins og segir í (Forseti hringir.) þjóðhátíðarlaginu. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Hvenær er ætlað að útkljá málið nú þegar engin fyrirstaða er fyrir því þar sem óvissunni er eytt með nýlegri afstöðu óbyggðanefndar?