niðurstaða óbyggðanefndar varðandi þjóðlendur í Vestmannaeyjum.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar ágætu spurningu. Það liggur fyrir að óbyggðanefnd hefur tekið afstöðu í málinu og ríkið mun í kjölfarið fara og hlíta þeim niðurstöðum. Eins og hv. þingmaður vék að þá er þetta vegferð sem hófst fyrir mjög löngu síðan. Í sjálfu sér hefur orðið töluverð breyting á áherslum ríkisins. Ég er ekki í góðri aðstöðu til þess að lýsa því hvers vegna farið var fram með þeim hætti sem hv. þingmaður lýsti hér áðan þar sem ríkið taldi sig eiga rétt á eignum sem hún listaði upp og eru Vestmannaeyingum án efa mjög mikilvægar og hluti af þeirra sjálfsímynd og daglegu náttúruupplifun. Þær kröfur voru endurskoðaðar eins og hv. þingmaður vék að. Nú hefur óbyggðanefnd tekið afstöðu sem ég get sagt að gangi enn lengra í þá átt að ekki sé innstæða fyrir þessum kröfum sem ríkið lagði fram og því verður auðvitað að hlíta.