156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

niðurstaða óbyggðanefndar varðandi þjóðlendur í Vestmannaeyjum.

[15:58]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Það gleður mig að vinnan sé í gangi og ég kannski spyr hæstv. ráðherra: Hver er tímalínan á málinu? Þetta er mál sem hefur ekki bara legið þungt á Eyjamönnum, þetta er landsbyggðarmál sem hefur skapað óvissu víða um land og það er mikilvægt nú þegar niðurstaðan liggur fyrir að það sé skýrleiki um það hvernig verði staðið að framkvæmdinni og hvenær við megum búast við að þessu máli verði eytt. Og ég ítreka að það er jákvætt, sama hver saga málsins hefur verið, að þessi niðurstaða sé fyrst og fremst komin.