156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

útvistun sakamáls til einkaaðila.

[15:59]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S):

Frú forseti. Einn helsti styrkleiki íslensks samfélags er traust á grundvallarstofnunum þess, lögreglunni og ákæruvaldinu þar á meðal. Við höfum þá verðmætu stöðu að verja að á Íslandi ber fólk meira traust til grundvallarstofnana samfélagsins en víða annars staðar. Í þessu felast gríðarleg verðmæti sem allir ábyrgir stjórnmálamenn eiga að standa saman um að varðveita. Þau sem bera ábyrgð hjá hinu opinbera þurfa að taka sínar skyldur alvarlega og gæta þess að framganga þeirra grafi ekki undan því trausti sem þeim er sýnt. Sá gagnaleki sem mikið hefur verið í fréttum undanfarna daga er þess vegna gríðarlega alvarlegur. Það er margt í málinu sem þarf að upplýsa, bregðast við og læra af. Reglur réttarríkisins mega aldrei fara á útsölu, frú forseti.

Í ljós hefur komið að ákvörðun var tekin um að útvista rannsókn heils sakamáls til einkaaðila sem fékk fullan aðgang að öllum gögnum málsins hjá embættinu og meðhöndlun þeirra var augljóslega óeðlileg. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvernig hún hyggist taka á þessu máli. Telur ráðherra það eðlilegt að saksóknari útvisti rannsókn sakamála til aðila úti í bæ og veiti þeim aðgang að öllum viðkvæmum gögnum sem málinu fylgja? Telur ráðherra að slík útvistun sé heimil og ef svo er, hyggst hún leggja til breytingar á gildandi lögum?

Frú forseti. Þetta gerðist ekki á vakt hæstv. dómsmálaráðherra en það fellur á hennar herðar að bregðast við og leysa úr þessu þannig að tjónið sem hefur orðið á íslensku réttarríki verði takmarkað við það sem þegar er orðið en stækki ekki og öðlist sjálfstætt líf. Traust gagnvart grundvallarstofnunum samfélagsins er stór þáttur í viðnámsþrótti okkar og ákveðnu samfélagslími. Þess vegna á að vera sameiginlegt markmið okkar allra hér að tryggja að það sem þarf að gera upp sé gert upp, að það sem þarf að laga sé lagað og að friðhelgi borgaranna sé ávallt tryggt þegar valdheimildir stjórnvalda eru annars vegar.