156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

útvistun sakamáls til einkaaðila.

[16:01]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og ég er henni einlæglega sammála um að traust er súrefni réttarkerfisins. Þess vegna er gagnaþjófnaður sá sem nú hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum í reynd árás á réttarkerfið, árás vitaskuld á það fólk sem um ræðir í þessum gögnum en líka árás á kerfið, því að kerfið er ekkert ef almenningur treystir því ekki. Það er í því ljósi sem ég legg svo þunga áherslu á að jú, það á rannsaka þetta mál sem sakamál hjá þartilbærum yfirvöldum. Það er góður bragur á því að nefnd um eftirlit með lögreglu geri það líka. Ég hef í dag sent bréf til héraðssaksóknara þar sem ég er að kalla eftir skýringum og upplýsingum um verklag þar um.

Svo er það forsaga málsins. Árið 2008 var samþykkt hér á Alþingi frumvarp um sérstakan saksóknara. Það var lagt fram af þáverandi dómsmálaráðherra, Birni Bjarnasyni. Við vitum öll hver forsagan var; efnahagshrun á Íslandi. Það var mat stjórnvalda þá að það þyrfti að rannsaka aðdraganda og þá þætti sem tengdust hruninu. Í þessa vegferð var farið. Mér finnst sjálfsagt núna þegar tíminn er liðinn að við rýnum í kjölfarið regluverkið sem þá var smíðað og gerum þennan tíma upp og skoðum hvort allt standist tímans tönn í þeim efnum. Þetta er eitt þeirra atriða þó að vissulega sé það þannig í sakamálarannsóknum, hvort sem við erum að leita eftir þjónustu endurskoðenda, sálfræðinga, til að gefa matsgerðir, að það er verið að leita eftir þjónustu utanaðkomandi aðila ef við horfum algerlega kalt á málin. Síðan eru auðvitað mörkin í þeim efnum og hvar þau eiga að liggja. En mér finnst sjálfsagt mál fyrir mitt leyti, ég hræðist ekki mínar eftirlits- og yfirstjórnunarheimildir, að rýna það í kjölfar þessa máls.