156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

útvistun sakamáls til einkaaðila.

[16:04]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Þrátt fyrir að heimild í lögum snúi að því að kaupa þjónustu, mjög afmarkaða, þá er ekki bara stigsmunur heldur grundvallareðlismunur á því að kaupa slíka þjónustu eða senda heilt sakamál og aðgang að öllum þeim gögnum til aðila úti í bæ. Þess vegna tel ég, ef það er raunverulega túlkað þannig að það sé heimilt, að það þurfi þá að breyta þeim lögum.

Mig langar í minni seinni fyrirspurn að spyrja hæstv. ráðherra, þar sem fram kom hjá henni núna og áðan að hún hafi sent spurningar á héraðssaksóknara, hvort ekki hafi verið tilefni til þess að senda spurningar sömuleiðis til að mynda á lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, ríkissaksóknara eða á aðra aðila innan kerfisins.