staða PCC á Bakka.
Herra forseti. Í ljósi fregna af grafalvarlegum málum langar mig að eiga hér samræður við hæstv. fjármálaráðherra. Nú er það svo að samkeppnisumhverfi margra iðnfyrirtækja er verulega skakkt, m.a. vegna ríkisstuðnings frá kínverskum stjórnvöldum. Alvarleg staða er komin upp í Norðurþingi þar sem rekstrarstöðvun vofir yfir PCC á Bakka. Á annað hundrað bein störf eru í húfi auk margra tuga afleiddra starfa. Ein meginástæða vandræðanna er niðurgreiðslur Kínverja á þarlendri starfsemi sem skekkir samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja. Það eru fyrirtæki sem eru keyrð, eins og hæstv. ráðherra er væntanlega kunnugt, með því að búa til rafmagn með kolum, greiða laun sem yrðu hér eflaust kölluð þrælalaun, og þetta í samkeppni við innlenda framleiðslu. Þekkt er að Bandaríkjamenn hafa lagt aukinn toll á ál og stál frá Kína. Kanadamenn hafa gert slíkt hið sama og Evrópusambandið hefur farið í verulegar tollaálögur á þessar vörur. Einnig er mér kunnugt um að málið hafi ratað inn í hv. atvinnuveganefnd og vonandi verður bráðlega eitthvert formlegt ferli þar sem fregnir berast af.
En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur ríkisstjórnin rætt málið? Hefur hæstv. ráðherra verið í samskiptum og sambandi við fyrirtækið? Hefur hæstv. ráðherra verið í sambandi við sveitarfélagið og fulltrúa sveitarfélagsins Norðurþing? Hefur hæstv. ráðherra verið í samband við Samtök iðnaðarins?