156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

staða PCC á Bakka.

[16:09]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Það er gott að heyra að það er virkt samtal í gangi því hér er um gríðarlega stórt mál að ræða sem auðvitað er miklu stærra heldur en bara málefni Norðurþings eða Norðausturlands. Ég saknaði þess hins vegar í svari ráðherra að fá skýr svör við því sem ég tel að ég hafi nú vikið allvel að í fyrirspurn minni: Kemur til álita af hálfu hæstv. ráðherra að gera líkt og ég nefndi að önnur lönd hafa gert gagnvart þessari niðurgreiddu starfssemi, sem er að beita hér — þó ekki væri nema tímabundnum — verndandi tollum til að verja innlenda framleiðslu og störf, framleiðslu sem fer jú öll fram og við höfum verið stolt af með því að virkja fallvötn og jarðvarma og skaffa græna orku til að búa til þessi verðmæti?