156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

staða PCC á Bakka.

[16:11]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Ég bið hv. þm. Þorgrím Sæmundsson innilega afsökunar á því að — Sæmundsson, sagði ég það ekki? (ÞorgS: Sigmundsson.) Sigmundsson. Fyrirgefðu. Ég biðst enn og aftur afsökunar, hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson, fyrir að hafa ekki vikið að svari við fyrri spurningunni en einhvern veginn glataði ég því í röð spurninga, svaraði þó ýmsu. Varðandi beitingu verndandi tolla þá snýr kvörtun PCC að beitingu slíkra aðgerða og það er þess vegna til skoðunar. Það er þó rétt að halda til haga að afurðir þessa fyrirtækis eru líka aðföng annarra fyrirtækja. Það þarf að skoða. Síðan þarf að skoða almennt séð, í heimi þar sem, eigum við ekki að segja, uppnám er í beitingu tolla af ýmsum ástæðum, hver strategía Íslands eigi að vera til lengri tíma. En þetta er til skoðunar.