svör fjármála- og efnahagsráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.
Herra forseti. Svör hæstv. fjármálaráðherra hér í fyrirspurnatíma rétt áðan varðandi hvar hann var staddur og hvað hann bardúsaði á þeim tíma kalla fram fleiri spurningar heldur en svör sem fengust. Það var svona rúmlega ráðlagður dagskammtur af yfirlæti sem fólst í því sem kom fram í máli ráðherra þegar hann sagði sig hrærðan vegna áhuga þingheims á fjarveru sinni við umræðuna sem hér átti sér stað á laugardaginn. Maður hlýtur að spyrja sig þegar hæstv. ráðherrar bætti við, með leyfi forseta, að þingmenn gæti greint á um „hvað séu markverðir fundir og hvað séu ekki markverðir fundir …“ — Nei, það er ekki þannig. Hæstv. ráðherra, sérstaklega ráðherra sem var í húsi, átti bara að mæta hér til fundarins og ræða það mál eða glöggva sig á því sem þar var undir. Þetta er auðvitað ekki boðlegt og svo fer hæstv. ráðherra í einhverjar lýsingar á því að það sé nú hægt að fylgjast með umræðum annars staðar en í þingsal. Það er alveg rétt, en er hæstv. ráðherra að halda því fram að hann hafi verið að horfa á beina útsendingu (Forseti hringir.) frá umræðum hér í þingsal á peppfundi Viðreisnar, Viðreisn í ríkisstjórn, hvað nú? Er von að spurt sé, hvað nú?