svör fjármála- og efnahagsráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.
Herra forseti. Þetta svar hæstv. fjármálaráðherra var með ólíkindum, eins og hv. þm. Bergþór Ólason fór hér yfir. Að mínu viti ber hæstv. ráðherra að biðja þingheim afsökunar á því að ýja að því að vinnufundur Viðreisnar sé markverðari en 1. umræða um mál sem hann sjálfur tók þátt í að kynna og var staðgengill hæstv. atvinnuvegaráðherra í málinu. Er eitthvað málum blandið að það sé markverðara en vinnufundur Viðreisnar í næsta húsi? Ætlar forseti ekki að gera athugasemd við að hæstv. ráðherra leyfi sér að tala svona við löggjafarvaldið, hv. þingheim? Og að ýja að því að dagskrá Alþingis sé víða á sjónvarpsskjám, eða hvernig það var orðað, lýsir í fyrsta lagi fullkominni vanvirðingu gagnvart því samtali sem var óskað eftir af hv. þingmönnum. En er það trúverðugt, herra forseti? Er það trúverðugt að hæstv. ráðherra hafi setið á vinnufundi Viðreisnar og verið að horfa á dagskrá þingsins í sjónvarpinu? Það sást alla vega ekki á þeim myndum sem við sáum frá þeim fundi.