156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

svör fjármála- og efnahagsráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.

[16:17]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Forseti. Erindi mitt í þessa umræðu er ekki að gera hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hrærðari heldur en hann þegar er orðinn út af þeim orðaskiptum sem áttu sér stað áðan. Ég geri mér grein fyrir því að það er ærið verkefni fyrir þingflokk Viðreisnar að klóra sér í kollinum og hugsa hvað nú, hvað í ósköpunum nú? Ég geri mér alveg grein fyrir því. En að hæstv. ráðherra skuli gangast við því að hafa tekið slíkan fund fram yfir þá skyldu sína að sitja hér við 1. umræðu eins stærsta máls ríkisstjórnarinnar er hrein vanvirðing við þingið og á ekki að láta átölulaust. Þess vegna fagna ég því nú ef forseti tekur með einhverjum hætti á þessu máli og ég tek undir það sem hér kom áðan fram að auðvitað væri réttast fyrir hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra (Forseti hringir.) að koma hér í þingsal og biðjast forláts á því að hafa verið með þessa forgangsröðun síðastliðinn laugardag.