svör fjármála- og efnahagsráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.
Virðulegur forseti. Já, þessi svör hæstv. ráðherra hér áðan voru með algjörum eindæmum og lýsa mikilli vanvirðingu við þessa stofnun og þessa mikilvægu málstofu sem Alþingi Íslendinga er. Ég ætla að þakka hæstv. forseta hér áðan fyrir að segja okkur skýrt hver skilaboðin voru því það er auðvitað mikilvægt að forseti láti hæstv. ráðherra vita og það er mikilvægt að ráðherrar séu hér þátttakendur í umræðunni og í það minnsta hlusti á þá umræðu sem á sér stað hérna undir málunum þeirra. Það að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hafi svarað hér til eins og hann gerði áðan og velt því fyrir sér hvort væri mikilvægara að mæta til þingfundar í þingsal þar sem eftir honum var kallað, þar sem hann bar ábyrgð á máli, þar sem hann gegndi fyrir hæstv. atvinnuvegaráðherra, eða einhver vinnufundur úti í Smiðju hjá Viðreisn er með algerum ólíkindum. Það er með ólíkindum að okkur sé boðið upp á þennan málflutning. (Forseti hringir.) Ég heyrði hér áðan að forseti sagði að það yrði rætt við forsætisnefnd. Það er sjálfsagt að ræða það í forsætisnefnd og þá auðvitað styðjum við hæstv. forseta í því að sjá til þess að hæstv. ráðherrar mæti til þings þegar eru kallaðir til þings.