veiðigjald.
Herra forseti. Eins og ég fór yfir hér í pontu á laugardaginn, þrátt fyrir að kannski hafi ekki allir verið hér í salnum til þess að heyra það, þá er óumdeilt, eins og segir mjög skýrt í frumvarpinu sjálfu, að veiðigjöld eru skattar þannig að hér er um að ræða skattahækkun og meira að segja gríðarlega mikla skattahækkun. Við í stjórnarandstöðunni teljum því rétt að málið fái betri meðferð í nefnd þeirri sem fer með skattamál á sínu málefnasviði, sem er efnahags- og viðskiptanefnd.
Ég vil fá að taka fram hér fyrir hönd stjórnarandstöðunnar, þar sem ég geri ráð fyrir því, þar sem núna eru ansi margir hér í salnum og er gleðilegt að sjá, að tillaga ríkisstjórnarinnar um atvinnuveganefnd verði sú nefnd sem verði hér ofan á, og vil bara fá að segja að sama í hvaða nefnd málið fer þá skiptir ofboðslega miklu að málið fái ofboðslega góða vinnu í nefndinni. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál. (Forseti hringir.) Það var allt of skamman tíma í samráðsgátt. Það á eftir að svara hinum ýmsu spurningum og skoða ýmsa agnúa. Við skulum vona að það auðnist að gera það með sóma í nefndarstarfinu.