veiðigjald.
Virðulegur forseti. Á bls. 15 í greinargerðinni, 4. kafla, segir, með leyfi forseta: „Ágreiningslaust er að veiðigjald er skattur í skilningi 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar …“ Í þessu ljósi teljum við í stjórnarandstöðunni eðlilegt í öllu tilliti að málið gangi til hv. efnahags- og viðskiptanefndar enda fer sú nefnd með skattamálefni, hvort sem það er breyting á reglum til hækkunar eða lækkunar eða kerfisbreyting. Þetta auðvitað stendur beinlínis í frumvarpi ríkisstjórnarinnar, aftur, með leyfi forseta: „Ágreiningslaust er að veiðigjald er skattur í skilningi 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar …“ Þetta er það sem hæstv. ráðherra skrifar sjálfur í frumvarpið sitt þannig að ég hvet þingmenn til að greiða atkvæði gegn þeirri tillögu sem liggur hér fyrir um að málið gangi til atvinnuveganefndar þannig að tillaga okkar í stjórnarandstöðunni um að málið gangi til efnahags- og viðskiptanefndar, þar sem það á heima, (Forseti hringir.) komi hér til atkvæða og gangi eftir. Þingflokkur Miðflokksins mun í öllu falli greiða atkvæði gegn því að málið gangi til hv. atvinnuveganefndar.