156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:29]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér höfum við rætt þetta mál mikið og vel í þingsal og einmitt talað um hvað þetta er augljós skattur. Stjórnarflokkarnir hafa líka haldið því fram að þetta séu gjöld. Jú, jú, skattar og gjöld eru einmitt hjá okkur í hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Þetta hefur líka áhrif á ýmsa aðra skatta. Það er alveg augljóst að því hærri sem þessi skattur verður þá dregst annar skattur, sem er tekjuskattur, saman þannig að þetta hefur áhrif á skatta og gjöld og þess vegna á málið heima hjá efnahags- og viðskiptanefnd. Hvet ég því þingheim til þess að fella fyrri tillöguna og styðja tillögu minni hlutans. Ég vil kannski minna á hér í lokin að ef hv. stjórnarþingmenn hefðu mætt í vinnunni á laugardaginn þá værum við ekkert í þessari atkvæðagreiðslu í dag.