156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:31]
Horfa

Gísli Stefánsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég sem borinn og barnfæddur Vestmannaeyingur, kem úr útvegsbæ, finn mig knúinn til að tjá mig um þetta mál sem er ekkert annað en skattahækkun og skattahækkun á fjölskyldur á landsbyggðinni. Tvö af fimm stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum í landinu eru í Vestmannaeyjum. Á síðasta ári þá greiddu þessi félög 1,1 milljarð í veiðigjöld. Ef lögin hefðu verið samþykkt fyrir síðasta ár hefði þessi tala verið 2,6 milljarðar. Þetta bitnar á fjárfestingu í samfélaginu. Þetta lækkar skatttekjur ríkissjóðs til lengri tíma. Þetta letur útflutningsgrein sem hefur byggt þetta land og þess vegna tel ég það fullkomlega rétt að þetta skattamál eigi heima í efnahags- og viðskiptanefnd og ég hvet þingið til að greiða atkvæði með því.