veiðigjald.
Virðulegur forseti. Mig langar hér stuttlega til að benda á það augljósa sem þó hefur ekki verið sagt í þessari umræðu en gæti skýrt áhersluna sem stjórnarflokkarnir leggja á að senda þetta skattamál til atvinnuveganefndar. Það er sú staðreynd að í atvinnuveganefnd eiga stjórnarflokkarnir sex fulltrúa en stjórnarandstaðan einungis þrjá. Í efnahags- og viðskiptanefnd eiga stjórnarflokkarnir fimm á móti fjórum fulltrúum stjórnarflokkanna. Stjórnarflokkarnir tryggðu sér aukinn meiri hluta í atvinnuveganefndinni með atkvæðavægi sínu í upphafi þings og nú kannski er að birtast okkur hvers vegna sú ofuráhersla var lögð á að hafa aukinn meiri hluta í atvinnuveganefnd í ljósi þess með hvaða hætti virðast vera áform um að koma þessu illa unna, lítt hugsaða máli áfram og í gegn. Ég vil bara benda á þetta. Þetta gæti verið ástæðan fyrir þessari ofuráherslu á að þetta skattamál fari til atvinnuveganefndar.