156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:37]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmönnum, þetta er mjög stórt mál og það þarf mikla vinnu í nefndunum til þess að menn átti sig á þeim áhrifum sem þetta getur haft. Þar liggur undir að gera miklar fjárhagslegar greiningar á rekstrarreikningum sveitarfélaga og fyrirtækja, í sjávarútvegi, nýsköpun og víðar; hvaða áhrif þetta hefur á tekjur og gjöld ríkissjóðs sem dæmi. Það er rétt, sem hv. þm. Pawel Bartoszek kom inn á, að þetta hefur alltaf farið í atvinnuveganefnd, enda þá verið að tala um hvernig eðli greinarinnar er og annað slíkt. En nú er allur málflutningur ríkisstjórnarinnar að þetta sé skattur, að hann eigi að vera réttlátur og að andlagið sé rangt og annað slíkt. Þetta er allt önnur umræða en verið hefur hingað til. Það er ekki verið að fara á dýptina, hvernig atvinnugreinin virkar, í framlagningu hæstv. ríkisstjórnar. Það hefði kannski verið nær að gera það og hugsa um það áður en málið var lagt fram.