veiðigjald.
Herra forseti. Það er svolítið sérstakt að mönnum þyki það sæta einhverjum tíðindum að hér standi þingmenn í pontu, sama úr hvaða flokki hann er, og tali fyrir því að þingnefnd taki mál vel og vandlega fyrir, hlusti eftir þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið í umræðunni, fari vel yfir umsagnir og kalli inn gesti. Auðvitað gerum við það í öllum málum. Auðvitað styðjum við það öll, hvort sem við erum í meiri hluta eða minni hluta. Auðvitað er mjög áhugavert að heyra þetta sem hv. þm. Pawel Bartoszek rakti hér áðan. Þessi mál hafa alltaf farið inn í atvinnuveganefnd. Færum það bara í eitt skipti fyrir öll til bókar. Ef stjórnarandstaðan vill endalaust vera að tala um þetta sem einhverja mikla skattahækkun en ekki hækkun á veiðigjöldum, þau um það. Lögin heita lög um veiðigjald og það hefur lengi verið kallað eftir því, af þeim flokkum sem nú eru í ríkisstjórn, að veiðigjaldið verði hækkað með réttlátum hætti vegna þess að fólki hefur sviðið það óréttlæti sem hefur verið látið yfir þjóðina ganga í skjóli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og nú Miðflokks. Tali menn bara um auðlindaskatta þá tala menn bara um að hér sé alltaf verið að leggja á auðlindaskatta. Þetta eru hins vegar auðlindagjöld og þetta eru kölluð auðlindagjöld af ástæðu.