156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:40]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég tel í meira lagi líklegt að tillaga stjórnarandstöðunnar verði felld og málið fari í atvinnuveganefnd. Ég held þó að það sé allt í lagi að ítreka það hér að það sé mikilvægt þegar svona mál er undir, sem er auðvitað skattahækkun, þótt málið snúi að veiðigjaldi og frumvarpið beri það nafn — eins og komið hefur fram þá segir í frumvarpinu sjálfu að þetta sé skattahækkun. Ég held að það sé allt í lagi að viðurkenna hið augljósa, þar sem menn skrifa frumvarpið sjálfir, að það sé skattahækkun. Þá er allt í lagi að ítreka að það þurfi vandlega meðferð. Þrátt fyrir að eftirspurn sé eftir því, sérstaklega hjá kjósendum meiri hlutans en örugglega sumum öðrum kjósendum líka, að stórhækka gjöld og skatta á sjávarútvegsfyrirtæki, þá er mikilvægt fyrir löggjafarvaldið að átta sig á því hvaða afleiðingar það hefur þó ekki væri nema fyrir þær mismunandi byggðir úti um land þar sem áhrifin eru mjög mismunandi. Óbeinu áhrifin verða töluverð. Það er sama hvaða skoðun menn hafa á því, hvort þetta sé réttlátt eða ekki, þá hefur þetta að sjálfsögðu afleiðingar. Og það er ekkert nema eðlilegt og heilbrigt að það sé ítrekað, hvar sem málið endar, að það sé tekið fyrir í samhengi hlutanna.