veiðigjald.
Virðulegur forseti. Sama hvaða hv. nefnd tekur málið fyrir þá er auðvitað algerlega ágreiningslaust, eins og stendur í sjálfu frumvarpinu, að hér er um skatt að ræða. Mig langar líka fá að ítreka að sú nefnd sem fær málið til umfjöllunar taki það alvarlega að skoða hvaða áhrif svona mikil skattahækkun í einu skrefi, ekki í öruggum skrefum eins og boðað var í aðdraganda kosninga, á nýsköpun og fjárfestingu í tæknilausnum og frumkvöðlum um land allt. Ég held að við sem höfum verið að berjast hér saman, þingheimur, löggjafarvaldið, við að efla fjárfestingu í rannsóknum og þróun á Íslandi, gera Ísland samkeppnishæft þegar kemur að nýsköpun og náð verulegum árangri, hvar sem við stöndum og getum verið stolt af, látum ekki þetta mál eða þessa atvinnugrein byrgja okkur sýn sama hvernig hv. þingmenn ákveða að tala um þessa atvinnugrein, heldur höfum það fastlega í huga að þetta mun hafa áhrif á nýsköpun og frumkvöðla.