156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:43]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Já, það hefur verið áhugavert og fróðlegt að taka þátt í þessari umræðu um veiðigjaldið upp á síðkastið og nú er komið til atkvæðagreiðslu um að vísa þessu í nefnd. Ég átta mig á því í hvaða nefnd málið mun fara eftir þessa fyrri umræðu. En það sem mér hefur þótt hvað athyglisverðast er einmitt þetta að ráðherrar, bæði atvinnuvegaráðherra og aðrir ráðherrar sem málið mun svo sannarlega snerta — það snertir svo sannarlega fleiri ráðherra, hvernig áhrifin munu verða af þessu með tíð og tíma. Það gerist ekki samdægurs. Það gerist ekki í næstu viku eða þarnæstu. Það gerist með tíð og tíma og það er ótrúlegt að ekkert sé hlustað hér á 26 sveitarfélög í landinu sem eru að veita mjög harðorðar umsagnir gegn málinu og vara við. Það hefur eitthvað verið komið til móts við það en enn er verið, þrátt fyrir nýjar upplýsingar, að vara við áhrifum þessa. Ég vil ítreka það sem ég hef sagt í þessari umræðu að mér finnst þetta vanvirðing við þessi sveitarfélög í landinu. Þetta er vanvirðing við sveitarfélögin í landinu, hvernig hefur verið skautað fram hjá umræðu og fram hjá því að svara þeirri gagnrýni sem hefur komið frá þeim.