156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:45]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Hv. þm. Pawel Bartoszek kom hér upp áðan til að segja að ekki væri fordæmi fyrir því að málið fari inn í efnahags- og viðskiptanefnd. Enda eru engin fordæmi fyrir því, og engri ríkisstjórn hefur áður dottið það í hug, að tvöfalda veiðigjöld á einu bretti, tvöfalda veiðigjöld, auka skattana svona mikið á einu bretti. Þetta hefði verið óhugsandi hér áður fyrr. Þetta er vanhugsað frumvarp, þetta er popúlískasta frumvarp sem ég hef lesið. Ég styð að þetta fari í efnahags- og viðskiptanefnd þar sem það á heima þar sem þetta eru skattahækkanir.