156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:46]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Í umræðunni í síðustu viku um veiðigjöld hefur sá sem hér stendur lagt mesta áherslu á gögn og greiningar. Það er ljóst að í það frumvarp sem hefur verið lagt hér fram vantar verulega upp á mat á áhrifum, fjárhagslegum áhrifum, og þá sérstaklega á landsbyggðirnar. Það hefur komið fram í þessari umræðu að sú skattheimta sem er viðhöfð hér hefur sjö- til áttfalt meiri áhrif á landsbyggðirnar en á höfuðborgarsvæðið. Við erum að tala um kannski 15 eða 18–19% á móti 1–2% á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna skulum við tala mjög skýrt þegar við ræðum þessi mál. Hér er verið að tala um landsbyggðarskatt í sinni hreinustu mynd. Það mun draga úr seiglu, viðnámsþrótti, þorpa vítt og breitt um landið, bæja, ekki bara í þessum mánuði heldur næstu ár og áratugi, ef farið verður í þær aðgerðir sem eru boðaðar hér.