veiðigjald.
Virðulegur forseti. Hv. stjórnarþingmenn hafa komið hér upp og talað um réttlæti fyrir þjóðina. Það er nefnilega þannig að bæjarstjórnir 26 sveitarfélaga hafa sent inn umsagnir og Starfsgreinasambandið hefur líka sent inn umsagnir, og þær eru allar á sömu leið. Það er nú þannig að íbúar þessara sveitarfélaga, félagsmenn Starfsgreinasambandsins, starfsfólk þeirra tæknifyrirtækja og nýsköpunarfyrirtækja sem hafa sent inn umsagnir, sem flestöll eru hér á suðvesturhorninu, við megum ekki gleyma því, Sjávarklasinn, Kapp, Marel og fleiri fyrirtæki; úr þessum ranni hefur verið bent á alvarleika þessa máls. Þetta fólk er líka þjóðin. Það er líka þjóðin. Það er ekki hægt að koma hér upp og horfa fram hjá því að það er alveg ótrúlega margt fólk, og fjölskyldur þeirra, sem er líka hluti af þjóðinni sem á mikið undir í þessu máli. (Forseti hringir.) Ég skora á hv. ríkisstjórn að horfa til þess og hv. atvinnuveganefnd, eða hv. efnahags- og viðskiptanefnd, að horfa til þess þegar málið kemur til umræðu.