156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:49]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þjóðin, hvað er þjóðin? Þjóðin er örugglega lífeyrissjóðirnir. Tveimur dögum eftir að ríkisstjórnin tilkynnti um tvöföldun skatta á sjávarútveginn hafði verðmæti sjávarútvegsfyrirtækjanna í Kauphöllinni lækkað um 7,2 milljarða. Í dag er lækkunin orðin 40 milljarðar. Hlutfall almennings eða lífeyrissjóðanna í þessum félögum er misjafnt en hægt er að reikna það út að lækkun fyrir lífeyrissjóðina er mun meiri en veiðigjaldið, tvöfaldi skatturinn, sem ríkisstjórnin er að leggja. Vissulega er öll þjóðin að tapa á þessu. Bara þarna er tapið komið. Og síðan með minna útsvari, íþyngjandi aðgerðum á landsbyggðinni, minni nýsköpun, færri tæknifyrirtækjum — þetta er illa ígrundað frumvarp sem þarf að fá virkilega mikla yfirhalningu og yfirlestur í nefnd.