156. löggjafarþing — 40. fundur, 12. maí 2025.
veiðigjald.
351. mál
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með þeim þingmönnum sem hafa sagt að óháð því í hvaða nefnd frumvarpið fari sé gríðarlega mikilvægt að við náum utan um umsagnirnar og að við náum utan um greiningar og gögn og þá sérstaklega fyrir landsbyggðina. Við viljum aukinn ábata frá atvinnugreininni en við viljum líka blómlegar byggðir og við þurfum niðurstöðu í þessu máli sem nær yfir hvort tveggja.