156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:54]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Við í Framsókn teljum að þetta sé augljóslega skattamál en við höfum líka lagt áherslu á það í okkar málflutningi að það séu leiðir til að reyna að nálgast málið á lausnamiðaðan hátt, að þetta sé umtalsverður skattur. Það er reyndar alveg vitað nú þegar að skattspor þessarar greinar hækkar ekki um 10 milljarða þó að menn hækki veiðigjöld um 10 milljarða, það hækkar talsvert minna. Það gæti líka haft mjög neikvæð áhrif á verðmætasköpun sem myndi þýða að skattsporið minnkar. Það hefur líka mjög neikvæð áhrif á þau sveitarfélög þar sem sjávarútvegur er aðalatvinnugreinin. Ég ætla því að leggja það til við þessa atkvæðaskýringu, sem mér sýnist enda á því að málið fari til atvinnuveganefndar, að atvinnuveganefnd óski eftir umsögn, annars vegar frá efnahags- og viðskiptanefnd og hins vegar frá umhverfis- og samgöngunefnd þar sem sveitarfélögin eru undir, eða kalli í það minnsta eftir öllum hagaðilum sveitarfélaganna sem og annarra til nefndarinnar. En ég held að það færi best á því að óska hreinlega eftir umsögn frá þessum tveimur nefndum til að átta sig á hvaða áhrif þetta hefur raunverulega á samfélagið því að það stendur ekki í frumvarpinu og er ekki skýrt eftir 1. umræðu þessa máls.