156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:58]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Nú aukast viðsjár um allt land. Þetta frumvarp virðist hafa gífurleg áhrif, sérstaklega úti á landsbyggðinni. Auðvitað þarf að skoða þetta mál miklu betur miðað við undirbúning þess. Ég hefði helst viljað vísa því til fleiri nefnda eins og efnahags- og viðskiptanefndar, atvinnuveganefndar og einnig er þetta málefni sveitarstjórnanna sérstaklega. Ég ber þá von í brjósti að málið verði skoðað vandlega í hvaða nefnd sem það fer vegna þess að það er greinilegt að þessi skattlagning hefur gífurleg áhrif um allt land og á fjölmarga aðila.