156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[17:00]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Því er nú háttað þannig með margt það mikilvægasta í lífinu að við leiðum ekki hugann að því meðan allt leikur í lyndi. Öryggi ástvina okkar, tími með þeim sem við elskum, góð heilsa, frelsi til að gera það sem hugurinn stendur til og lifa því lífi sem við kjósum. Allt þetta er sjálfsagt þegar við njótum þess en við finnum svo vel fyrir mikilvægi þess þegar því er ógnað, hvað þá þegar það er umsvifalaust tekið af okkur. Grunnurinn að sjálfstæði og velferð Íslands liggur í sterku alþjóðakerfi sem byggir á virðingu fyrir mannréttindum, virðingu fyrir fullveldi og friðhelgi landamæra ríkja og stuðningi við alþjóðalög. Við höfum allt frá stofnun lýðveldisins notið þess öfluga alþjóðakerfis sem mótaðist og byggðist upp í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar með það að markmiði að efla samvinnu ríkja um frið, um frjáls viðskipti og framþróun. Undanfarið hafa atburðir í alþjóðakerfinu vakið upp spurningar um grundvallaratriði á borð við öryggi, mannréttindi, virðingu fyrir leikreglum og um frjáls viðskipti. Jafnframt vakna spurningar um stöðu Íslands og hvernig við tryggjum best hagsmuni þjóðar okkar til lengri tíma. Þetta eru spurningar sem við viljum ef til vill forðast en við tökumst engu að síður á við, ekki vegna þess að þessar spurningar eru auðveldar heldur einmitt vegna þess að þessar spurningar eru erfiðar.

Grimmilegt árásarstríð hefur geisað í Evrópu síðustu þrjú árin þar sem saklaust fólk hefur látið lífið í þúsundatali í Úkraínu. Skelfilegur harmleikur fyrir botni Miðjarðarhafs virðist engan endi ætla að taka og tala látinna barna og borgara hækkar með hverjum degi. Mannúð má síns lítils, lífsnauðsynlegri mannúðaraðstoð er haldið frá almennum borgurum og okkur gjörsamlega ofbýður valdbeitingin, skeytingarleysið um líf fólks og virðingu fyrir helgi einstaklingsins og mannlegri reisn. Þau alvarlegu brot á alþjóðalögum sem þar eiga sér stað nú eru með öllu óásættanleg og það er þyngra en tárum taki að alþjóðasamfélagið hafi ekki náð samstöðu um að stöðva átökin.

Önnur átök víða í heiminum hafa leitt til þess að aldrei hafa fleiri verið á flótta og þörf fátækustu ríkjanna hefur aldrei verið meiri. Á sama tíma sjáum við líka róttækan niðurskurð á framlögum til þróunarsamvinnu meðal stærstu framlagsríkjanna. Alþjóðalög og alþjóðastofnanir sem komið var á fót hér á árum áður til að styrkja frið og styrkja velsæld í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar eiga undir högg að sækja. Við sjáum hrikta í stoðum viðskiptakerfisins þar sem ríki og ríkjasambönd, jafnvel rótgrónar vinaþjóðir, takast á í tollastríði þar sem enginn er sigurvegari og allir tapa.

Við höfum einnig horft upp á sjálfsögð réttindi til að vera og lifa eins og við kjósum sjálf að vera hverfa á einu augabragði þar sem sótt er að rétti fólks til þess einmitt að lifa eins og það vill lifa og elska eins og það vill elska.

Ísland situr ekki hjá á þessum umrótatímum heldur stöndum við staðfastlega með friði, frelsi, mannréttindum, opnum viðskiptum og skýrum leikreglum. Við stöndum með gildum okkar allt frá upphafi sjálfstæðis okkar 1944 og við ætlum ekki að hverfa frá þeim gildum. Við eigum virkt og náið samstarf með þeim ríkjum og ríkjasamböndum sem deila sömu gildum og sömu hugmyndum og við, sérstaklega á Norðurlöndunum og í Evrópu.

Nú eru liðin þrjú ár frá því að Rússland gerði allsherjarinnrás í Úkraínu, augljóslega í þeirri von að brjóta landið hratt undir sig og setja undir stjórn Kremlar. Ísland hefur allt frá fyrsta degi innrásarinnar verið samstiga bandalags- og samstarfsríki í stuðningi við Úkraínu og tekið virkan þátt í pólitísku samráði og samstöðuaðgerðum, þar á meðal með varnartengdum stuðningi, mannúðar- og efnahagsstuðningi, þátttöku í þvingunaraðgerðum og áherslu á ábyrgðarskyldu Rússlands.

Við getum litið á landvinningastríð Rússlands í Úkraínu með tvennum hætti. Við getum litið svo á að þetta sé stríð tveggja erlendra ríkja sem snertir okkur ekki með beinum hætti, að þetta sé þeirra stríð, ekki okkar stríð, að við eigum ekki að eyða tíma, hvað þá peningum í að styðja Úkraínu, að við eigum ekki að standa með öðrum lýðræðisríkjum á alþjóðavettvangi til stuðnings Úkraínu þar sem það getur valdið óþægindum, t.d. í viðskiptum við Rússland. Ég þekki þessi sjónarmið og ég hef heyrt og heyri þessar raddir.

Alþingi, okkar ástkæra Alþingi, og ríkisstjórnin hafa hins vegar tekið hina einu réttu afstöðu, að landvinningastríð Rússlands í Úkraínu sé stríð alræðisstjórnar gegn lýðræðisríki, stríð sem er í fullkominni andstöðu við alþjóðalög, stríð sem beinist gegn fullveldi og sjálfsákvörðunarrétti sjálfstæðs ríkis, stríð sem er skref í átt að frekari ógn gegn öðrum ríkjum og frekari landvinningum Rússlands, stríð sem er alvarlegasta öryggisógn sem Evrópa hefur upplifað frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Þannig hefur Alþingi og nú ríkisstjórn Íslands litið svo á að stuðningur við varnarbaráttu úkraínsku þjóðarinnar sé ekki aðeins stuðningur við eitt ríki sem verst árásum annars ríkis heldur stuðningur við baráttu fyrir alþjóðalögum, fullveldi og sjálfstæði allra ríkja, þar með talið Íslands.Stuðningur við Úkraínu er þannig stuðningur við lýðræði og langtímaöryggi í Evrópu og það er þess vegna sem við styðjum Úkraínu og það er þess vegna sem við höldum áfram að styðja við Úkraínu þar til að réttlátur friður næst.

Mörg hafa lýst efasemdum og vanþóknun á því að Ísland, friðelskandi þjóð sem hefur ekki eigin her, styðji Úkraínu með fjármunum sem eru notaðar til kaupa á vopnum og skotfærum sem her Úkraínu nýtir síðan til að verja sig og landið sitt. Ég hef samúð með þeim viðhorfum og gildum sem eru undirliggjandi, ekki spurning, viðhorfum um að við eigum ekki að verja fé í búnað sem er hannaður til að valda öðrum skaða, gildum um frið, samhygð og mannúð. Mín fyrsta ferð sem utanríkisráðherra var einmitt til Kænugarðs og ég hef séð með eigin augum hrikaleg áhrif stríðsins. Saklaust fólk deyr þegar flugskeytum er beint að heimili þeirra. Mikill fjöldi almennra borgara hefur misst útlimi eða slasast á annan hátt. Öll hafa misst ástvin og er fólk slasað á sálinni með sár sem aldrei gróa. Við höfum öll séð í ljóslifandi fjölmiðlum afleiðingar grimmdarlegra árása Rússa á almenna borgara og nauðsynlega innviði; skóla, sjúkrahús, orkuveitur. Ég á enga ósk heitari en að þessum átökum væri lokið og við værum hér á Alþingi í dag að ræða miklu frekar um stuðning við endurreisn sjálfstæðrar og frjálsrar Úkraínu. En það er ekki staðan. Það er kaldur veruleiki að án vopna mega Úkraínumenn sín lítils í stríði gegn rússneskum stjórnvöldum sem engu eira og veigra sér ekki við að fórna eigin herliði í árásarstríði sínu og fá líka jafnvel nokkur þúsund hermenn lánaða, m.a. frá Norður-Kóreu. Þrátt fyrir loforð um vopnahlé hefur Rússland hert árásir sínar.

Við leyfum okkur samt að vona að nú sé komið að ákveðnum kaflaskilum, kaflaskilum sem má kannski segja að hafi birst okkur svolítið skýrt í Vatíkaninu þegar Bandaríkjaforseti settist niður með forseta Úkraínu. Þá fann ég á samtölum mínum m.a. við minn kollega í Úkraínu að það kviknaði enn frekar þessi vonarneisti sem hefur að mínu mati bara verið að eflast. Við leyfum okkur sem sagt að vona að nú sé komið að ákveðnum kaflaskilum og aukinn þrýstingur á Rússa og einlægur samningsvilji Úkraínu geti fært okkur nær friði. Það þýðir að það verði m.a. 30 daga vopnahlé, algerlega skilyrðislaust. Það er ekki hægt að semja á trúverðugan hátt meðan á sama tíma er verið að slátra fólki, börnum, konum, mönnum, hermönnum.

Þegar við gefum gjafir er það vegna þess að við viljum gefa. Viljinn til að láta af hendi rakna verður til í brjósti þess sem gefur. Réttlætingin fyrir gjöfinni hlýtur þó alltaf að vera þörf þess sem tekur við gjöfinni en ekki þörf eða hagsmunir þess sem lætur gjöfina af hendi. Þetta á sérstaklega við gjöf eða stuðning sem er veittur til fólks í ríkri neyð. Stuðningurinn verður að nýtast þeim sem eru í neyð en ekki markast af þörf þess sem veitir stuðninginn. Þess vegna hljótum við að virða óskir Úkraínu um að fá stuðning sem þau geta nýtt til þess að bera hönd yfir höfuð sér og verja fjölskyldur sínar og verja heimili sín fyrir grimmilegri árás innrásarhers Rússa. Við getum aðeins unnið að friði í Úkraínu og öryggi í Evrópu allri með því að standa staðföst með Úkraínu. Þetta tvennt helst saman og við verðum að halda áfram að vinna með bandalagsríkjum okkar í Atlantshafsbandalaginu. Þá má spyrja: Hversu lengi gerum við það sem þarf? Svarið er: Við gerum það eins lengi og þörf krefur.

Staðan í álfunni hefur breytt mati ríkja Atlantshafsbandalagsins á alvarleika þeirra ógna sem nú steðja að öryggi og lýðræði í aðildarríkjunum. Við sáum það m.a. strax á viðbrögðum Svía og Finna, sem fóru strax í NATO, og Danir fóru í þjóðaratkvæðagreiðslu og afnámu fyrirvarann sem tengist vörnum, varnarstefnu og Evrópusambandinu. En einnig á Íslandi þarf að eiga sér stað endurmat. Við þurfum opinskáa umræðu, við þurfum stefnumótun og við þurfum að fjárfesta í öryggi og vörnum landsins. Umræða um öryggis- og varnarmál má ekki vera til þess að skapa ótta eða óöryggi. Við eigum ekki að vera hrædd. Við eigum hins vegar að vera tilbúin, vera á varðbergi fyrir þeim ógnum sem kunna að mæta okkur og við eigum að treysta varnir okkar í samstarfi við bandalagsþjóðir sem hafa sömu gildi og við um lýðræði, mannréttindi og frjálst samfélag. Við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess einmitt að vera þessi verðugi bandamaður sem við viljum og höfum verið og ætlum okkur að halda áfram að vera.

Meðal annars með öll þessi sjónarmið í huga skipaði ég samráðshóp með fulltrúum allra flokka sem sitja á þingi til að rýna öryggis- og varnarstefnu fyrir Ísland. Það er nýtt. Ég vil þakka öllum flokkum hér á þingi, þeir hafa allir brugðist hratt við og unnið af kappi að þessari nauðsynlegu stefnumótun sem verður að lifa og vara lengur heldur en ein ríkisstjórn. Þetta er bæði skammtímamál en líka langtímaverkefni. Þétt samstarf dómsmálaráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins hefur enn fremur auðveldað mjög þessa vinnu og þær aðgerðir sem ráðist er í til að verja öryggi Íslendinga. Mín von er að vinna hópsins verði grundvöllur umræðu hér á þinginu fyrir þinglok og stefnu í öryggis- og varnarmálum.

Utanríkisráðuneytið hefur ekki aðeins skipað samráðshóp fyrir stefnumótun heldur einnig ráðist í aðgerðir í nánu samstarfi við dómsmálaráðuneytið, Landhelgisgæsluna og ríkislögreglustjóra. Þessar aðgerðir hafa m.a. það markmið að vernda mikilvæga innviði og auka skilvirkni, bæði í greiningu og viðbrögðum við ógnum. Nýlega færðist starfsemi CERT-IS, netöryggissveitar okkar Íslendinga, inn í utanríkisráðuneytið einmitt til þess að auka samstarf þeirra sem gæta að öryggi í samskiptum og kerfum á Íslandi og styrkja varnir. Á síðasta ári tvöfölduðust árásir á tölvu- og upplýsingakerfi á Íslandi en varnir okkar á þessu sviði hafa aldrei verið sterkari.

Á sama tíma fer fram vinna við að styrkja áfallaþol Íslands til að forðast, draga úr og komast yfir áföll sem við kunnum að verða fyrir. Við erum líka með viðmið frá NATO þegar kemur að þessu. Við höfum verið vöruð við því á okkar fundum, formlega sem óformlega, af öryggissérfræðingum og fleirum, að við megum búast við því að við verðum ekkert undanskilin sem land sem verður ekki fyrir árásum nettröllanna, hvar sem þau kunna að vera. Allar þær atkvæðagreiðslur, hvort sem það er þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið eða eitthvað annað — það er alveg ljóst að við þurfum að vera tilbúin og verjast því að nettröllin taki yfir.

Virðulegi forseti. Undanfarið hefur borið á vaxandi einangrunar- og verndarhyggju í alþjóðaviðskiptum. Til viðbótar við tollastríð er óstöðugleiki og óvissa í alþjóðasamskiptum sem hefur mikil áhrif á viðskipti og fyrir okkur er þetta vont. Við erum land sem byggir allt okkar á því að alþjóðalög séu virt og það sé opin og greið landamæri fyrir fólk en líka vörur og þjónustu. Það er mikilvægt að hafa í huga að tollastríð og vantraust í samskiptum stórveldanna haldast í hendur. Aukin verndarhyggja er ekki aðeins drifin áfram af efnahagslegum hvötum heldur orsakast hún einnig af togstreitu stórvelda sem beita sér fyrir öryggissjónarmiðum þegar þau setja á viðskiptahömlur. Háir tollar og örar breytingar á framkvæmd viðskiptastefnu nýrra valdhafa í Bandaríkjunum hefur á undanförnum vikum valdið talsverðri óvissu.

Ég vil sérstaklega draga fram að þetta 90 daga samkomulag sem Bandaríkjamenn og Kínverjar gerðu núna í morgun varðandi tolla skiptir mjög miklu máli, þar sem er verið að lækka þá og reyna að ná einhverju samkomulagi í gegn. Samtalið er betra heldur en hindranir. En í stað þess að auka viðskiptahömlur þá á einmitt að mínu mati að draga úr þeim. Tollar koma harðast niður á neytendum, niður á heimilum, niður á fyrirtækjum þeirra ríkja sem setja tollinn á. Það er einfaldlega ekkert á þeim að græða.

Á síðasta ári fögnuðum við 30 ára afmæli EES-samningsins. Það er erfitt að ofmeta þau gríðarlegu og jákvæðu áhrif sem samningurinn hefur haft á íslenskt samfélag og íslenskt viðskiptalíf, virðulegi forseti. Samvinna við Evrópusambandið og EES- og EFTA-ríkin, Noreg og Liechtenstein, er áfram framúrskarandi góð. Langstærstur hluti viðskipta Íslands er við Evrópu og fer fram á grunni EES-samningsins og síðan góðra samninga við m.a. Bretland. Auk þess hefur pólitískt samstarf í tengslum við EES-samninginn aukist mikið á síðustu árum. Í öllu þessu tollastríði skiptir máli að við erum fullir aðilar að innri markaði Evrópu. Það er auðvelt að færa fyrir því rök að samningurinn við ríki Evrópusambandsins um Evrópska efnahagssvæðið hafi aldrei verið mikilvægari en nú á tímum ólgu í alþjóðaviðskiptum og alþjóðamálum þar sem hann eykur hagvarnir og efnahagslegt öryggi Íslands. Við finnum vel fyrir því á öllum sviðum, hvort sem við lítum til viðskipta, öryggismála eða þróunarmála, að samningurinn stendur föstum fótum og við eigum sterka bandamenn í Evrópusambandinu sem deila með okkur sömu gildum um hugmyndir og hagsmuni.

Á grunni þessa góða samstarfs og með hliðsjón af reynslu okkar nánustu samstarfsríkja hef ég einnig lagt áherslu á að skoða frekari tækifæri til samstarfs og samráðs við Evrópusambandið. Hagsmunir Íslands liggja í náinni samvinnu við Evrópusambandið og aðildarríki þess. Þar eru miklar breytingar í farvatninu og valið sem þjóðin stendur frammi fyrir er hvort við viljum vera virkir þátttakendur í mótun Evrópu til framtíðar.

Eins og fram hefur komið mun fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla eigi síðar en 2027 um það hvort halda eigi áfram með aðildarviðræðurnar. Ég hef lýst því yfir og það er alveg ljóst af okkar hálfu að ef breyttar aðstæður í heiminum gefa ástæðu til að flýta atkvæðagreiðslunni þá er það auðvitað eitthvað sem við skoðum vel. Heimurinn tekur stöðugum breytingum þessa dagana og það er ljóst að aðstæður hafa breyst mikið síðan skrifað var undir stjórnarsáttmálann. Ég skil því vel þær spurningar sem ég fæ um það hvort það sé ekki kominn tími til að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni. Við höldum því að sjálfsögðu opnu, það er alveg ljóst hvað stendur í stjórnarsáttmálanum; ekki síðar en 2027. En það sem við verðum alltaf að hafa í huga á hverjum tímapunkti er hvað er best og réttast fyrir land og þjóð, ískalt hagsmunamat fyrir þjóðina okkar og landið.

Nýverið var forræði yfir alþjóðlegum samningum um fiskveiðar fært yfir til utanríkisráðuneytisins. Viðræður hafa staðið yfir lengi um þrjá stofna á meðal strandríkja og veiðiríkja, þ.e. um makríl, síld og kolmunna. Enginn samningur hefur verið í gildi um þessa þrjá stofna í fjölda ára og ber staða sérstaklega síldar- og makrílstofnsins þess greinilega merki. Við Íslendingar leggjum auðvitað stolt okkar við að hafa ábyrga fiskveiðistjórn og góð samskipti við nágrannaríki okkar. Þess vegna er rík þörf á að ná samningum sem tryggja ábyrgar veiðar og réttláta skiptingu veiðiheimilda sem fyrst, með vísindin og sjálfbærni auðvitað í farteskinu.

Það er síðan gleðilegt að nefna að síðastliðinn mars bárust niðurstöður landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna um landgrunn Íslands á Reykjaneshrygg. Landgrunnssvæðið sem var samþykkt í nefndinni er töluvert víðfeðmt eins og fólk veit og nær rúmar 570 sjómílur frá grunnlínu. Um er að ræða mikinn sigur í ferli margra ríkisstjórna sem staðið hefur yfir í tvo og hálfan áratug en niðurstaðan endurspeglar afar vel mikilvægi langtímahagsmunagæslu okkar Íslendinga þegar kemur að fullveldisréttindum Íslands yfir auðlindum sínum og hafsvæði.

Nú í ár verða liðin 80 ár frá því að Sameinuðu þjóðirnar voru settar á stofn til að standa vörð um grundvallarreglur um frið og alþjóðlega samvinnu og þau gildi sem liggja þeim til grundvallar; lýðræði, frelsi og mannréttindi. Þeim sem stóðu að stofnun þeirra var í mun að hörmungar heimsstyrjaldanna myndu aldrei endurtaka sig. Stofnanakerfi Sameinuðu þjóðanna stendur þó sannarlega á tímamótum vegna samdráttar í kerfinu og þverrandi virðingar fyrir þeim reglum og gildum sem þær eiga að verja. Fyrir Ísland sem á allt sitt undir því að alþjóðalög séu virt og að það sé hlúð að grunngildum í alþjóðlegu samstarfi er nauðsynlegt að taka virkan þátt í þeim umbótum sem þurfa að eiga sér stað eigi kerfið að halda. Mörg ríki hafa dregið verulega úr framlögum til þróunar- og mannúðaraðstoðar undanfarnar vikur og mánuði. Við í ríkisstjórninni ætlum að halda rödd Íslands áfram hátt á lofti fyrir mannréttindum og mannhelgi og við munum gera það sem við getum til að standa við okkar skuldbindingar þegar kemur að þróunarmálum og mannréttindum.

En það er sótt að mannréttindum víðs vegar um heim og bakslag hefur m.a. orðið í jafnréttisbaráttunni. Ísland tók um áramótin sæti sem eitt 47 kjörinna aðildarríkja mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna og verða málefni barna, kynjajafnrétti og réttindi hinsegin fólks sett í forgrunn sem og tengsl umhverfismála og mannréttinda. Fyrir einstök mannréttindamál er ekkert eins aðkallandi og það að ná fram núna vopnahléi Palestínu og tryggja virðingu fyrir grundvallarréttindum Palestínumanna. Ástandið á Gaza er með þeim hætti að ekki verður við unað. Þar blasa við brot á alþjóðalögum og hryllilegar aðstæður sem ég get ekki séð að séu annað en tilraun til þjóðernishreinsana. Við höfum í nýrri ríkisstjórn markað nýjar áherslur sem byggja á því m.a. að kalla Ísrael til ábyrgðar fyrir þau brot á alþjóðalögum sem framin eru á Gaza, að Ísrael skuli vera dregið til ábyrgðar þegar það kemur í veg fyrir það að neyðaraðstoð og nauðþurftir komi inn á svæðið. Við þær aðstæður sem nú ríkja á Gaza þar sem almenningur býr við meiri neyð en áður hefur þekkst (Forseti hringir.) og tugþúsundir manns hafa týnt lífi skiptir einnig miklu máli, eins og ég sagði áðan, að láta fé af hendi rakna til neyðaraðstoðar. Þar mun Ísland ekki skorast undan.

Virðulegi forseti. Það var eitt og annað í viðbót sem ég vildi koma að (Forseti hringir.) en ég geri það bara í seinni ræðu. Ég vona að við getum átt hér gott samtal og góðar samræður í dag fyrir Ísland og heiminn allan.