156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[17:21]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir framsöguna. Mig langaði af þessu tilefni að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í þessa vinnu eða gerjun á meðal Evrópulanda um hið svokallaða bandalag viljugra þjóða, held ég að sé rétt á íslensku. Hverjar metur hún líkurnar á því að það verði til og getur hæstv. ráðherra staðfest að við munum taka þátt í því? Það væri auðvitað með okkar sniði og með því framlagi sem við erum fær um að veita, sem er takmarkað en þó getur verið mikilvægt, bæði út frá okkar staðsetningu en líka pólitískum skilaboðum, með táknrænum hætti og raunverulegu framlagi.