utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka þessa spurningu því að það er mikilvægt að draga það fram að við höfum tekið þátt í fundum um bandalag viljugra þjóða, „coalition of the willing“. Ég sat síðast um helgina á laugardagsmorgninum fjarfund þessara þjóða fyrir hönd forsætisráðherra og þar kom fram mikil eindrægni um að vera til staðar og ekki bara það heldur að vera með yfirlýsingar um að reyna að tryggja þetta skilyrðislausa vopnahlé, 30 daga vopnahlé, og ef það verður ekki virt þá að fylgja því eftir með viðskiptaþvingunum. Það var meiri alvara og meiri þungi og meiri samstaða, fannst mér, meðal þessara þjóða heldur en áður hefur verið. Á þeim fundi var líka framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins og von der Layen einnig þar sem skýr orð voru sögð. Ég greini mikla samstöðu, sem er mikilvægt, en það sem mér finnst líka skipta máli er að það verði frekari aðgerðir ef Rússar bregðast ekki við. Það er svolítið að breytast að mínu mati núna (Forseti hringir.) með m.a. samningnum sem Bandaríkjamenn gerðu við Úkraínu. Það er að koma aukinn þungi, (Forseti hringir.) þá með Úkraínu, til að styðja við Úkraínu, fullveldi og sjálfstæði landsins og að friðhelgi landamæra sé virt.