156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[17:24]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og vona svo sannarlega að þetta samstarf eða bandalag eða í hvaða mynd sem það kann að verða verði til. Ég er sammála hæstv. ráðherra, að sjálfsögðu þarf það að gerast í þessari röð. Það er ekkert hægt að tala um neinar svokallaðar friðarviðræður ef aðdragandinn er ekki skilyrðislaust vopnahlé. Það er það sem þarf að gerast fyrst og í framhaldinu er hægt að ræða hitt. Ef Rússar fallast ekki á það, og ég bara trúi því þegar ég sé það og þangað til trúi ég því bara alls ekki neitt, er gríðarlega mikilvægt að Evrópa fari að taka stærri skref og sýni í verki þá krafta og þá burði sem Evrópa raunverulega hefur. Evrópa hefði gott af því að efla aðeins sitt sjálfstraust og vitund um hvers konar krafta er að finna í Evrópu, hvort sem þeir eru efnahagslegir eða pólitískir, og þau verkfæri sem Evrópa hefur og ég vona að hún fari að beita þeim í stærri skrefum.