156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[17:25]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek heils hugar undir orð hv. þingmanns. Það skiptir mjög miklu máli að Evrópa stígi upp og hún er að gera það. Pólverjar eru að komast upp í 5% af þjóðarframleiðslu í framlög til varna. Það verður rætt örugglega á leiðtogafundinum um 3,5% og 1,5%, bæði til varna og borgaralegra varna. En það sem skiptir núna lykilmáli er að það náist vopnahlé án skilyrða af hálfu beggja aðila. Þetta er eitthvað sem m.a. Bandaríkjaforseti lagði strax til á sínum tíma og Úkraínumenn hafa tekið heils hugar undir þannig að enn og aftur, þetta strandar alltaf á Rússum. Það er í þeirra höndum að stoppa stríðið.

Aðeins áfram af því að mér fannst ég ekki hafa svarað fyrri spurningunni hjá hv. þingmanni: Jú, við munum taka þátt í bandalagi hinna viljugu þjóða alveg eins og við getum. Við skoðum hvar við erum sterk og við að sjálfsögðu munum verða með okkar framlög. En það munum við gera náttúrlega í samráði við stjórnkerfið allt, við þingið, hvað það er sem við getum gert og hvernig við getum orðið að liði. Það er hægt að gera á margvíslegan hátt (Forseti hringir.) en við erum fullir þátttakendur í þessu og munum styðja þessar þjóðir, hvort sem það er innan NATO, innan þessa (Forseti hringir.) ríkjahóps eða annars staðar til að treysta og tryggja frelsi og öryggi í Úkraínu og þar með Evrópu.