156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[17:27]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir prýðisræðu. Mig langaði rétt að spyrja út í tvíhliða samstarf við nágrannaríkin og síðan Norðurlöndin, NORDEFCO og þessa þróun sem hefur orðið frá 2009 þegar það er stofnað til þess og það sem snýr að því. Kannski í samhengi líka við það sem er að gerast núna á fundinum í dag í Færeyjum um Norður-Atlantshafið og samvinnu Dana og Norðmanna tengt því, sem er bara hluti af þessari heildarmynd sem er að skapast. Hvernig þróum við þetta og borgaralega hlutverkið? Sá sem hér stendur hefur kannski mest talað almennt fyrir leit og björgun og þyrlurekstri, samvinnu við Dani og Norðmenn um björgunarhlutverkið í Norður-Atlantshafi og á okkar hafsvæði. Auðvitað vitum við að Danir og Norðmenn eru að fara í mjög miklar framkvæmdir við skipakost sinn fyrir Norður-Atlantshafið (Forseti hringir.) og við Færeyjar, Grænland og hér norður af okkur, og hvaða skoðun hæstv. utanríkisráðherra hefur á þessu.