156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[17:30]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. JEF, það eru Norðurlandaþjóðirnar, Eystrasaltsríkin, Holland og Bretland. Þá vil ég kannski næst spyrja: Það hafa verið einhverjar viðræður milli Íslendinga og Breta um frekara samstarf og að dýpka samstarfið hérna í Norður-Atlantshafi. Bretarnir hafa verið mjög áhugasamir um Norður-Atlantshafið sögulega og við náttúrlega þekkjum þá sögu vel. Hefur það samtal eitthvað vera að dýpka núna á undanförnum misserum sem snýr að Bretunum? Í samtölum sem maður hefur átt við breska þingmenn á undanförnum árum finnur maður fyrir mjög miklum áhuga þar á okkar hafsvæði og Norður-Atlantshafinu öllu og upp eftir öllu norðanverðu Norður-Atlantshafinu. Það væri áhugavert að heyra hvort hæstv. utanríkisráðherra geti svarað einhverju um það samstarf.